Hugrakka konan á batavegi

Finnbogi Rútur Finnbogason, eiginmaður Caroline, konunnar sem var skotin tvisvar sinnum í fæturna þegar hún sat með vinkonu sinni á kaffihúsi í París í fyrrakvöld, segir að aðgerð sem gerð var á eiginkonu hans á laugardag hafi heppnast vel.

Finnbogi Rútur sagði þegar Hringbraut átti samtal við hann undir miðnætti á laugardagskvöld að aðgerðin hefði verið „algjör sigur“.

„Ég hefði ekki getað beðið um betri niðurstöðu. Hún sefur og ‎er hugrökk, hress og hraust. Mér hefur nú verid sagt ad fara heim og sofa,“ segir MA-neminn sem leggur stund á alþjóðastjórnmál og heimspeki.

Finnbogi Rútur vakti aðdáun Íslendinga í gær með æðruleysi sínu og fordómaleysi þegar hann lýsti með hófstilltum orðum þeim hryllingi sem skall á þeim hjónum vegna hryðjuverkanna í fyrrakvöld. Í viðtali við Hringbraut sem fyrst flutti fréttina kom fram að hann var heima þegar Caroline hringdi í hann og sagðist hafa verið skotin í tvígang með vélbyssu. Hann svaf ekki eina mínútu í fyrrinótt.

„Svo fer ég með konuna mína í sveitina til að hvíla hana í að minnsta kosti sex vikur.“

Óttast var um afdrif vinkonu Caroline sem einnig fékk skot í sig í árásinni á kaffihúsinu. Vélbyssuskot hafnaði í bakinu á vinkonunni. Spurður um hennar líðan segir Finnbogi Rútur: „Ég fékk að hitta vinkonu okkar áðan og hún er við góða heilsu.“

Að sögn hans lenti byssukúlan millimetra fra hryggnum. Mátti því engu muna en betur mun fara en á horfðist í báðum þeim tilfellum sem íslenska þjóðin hefur fylgst spennt með vegna þeirra tengingar að Finnbogi Rútur er eini Íslendingurinn sem Parísarhermdarverkin snertu með eins beinum hætti

Finnbogi Rútur biður fyrir kveðjur heim til Íslands.