Sverrir Björnsson, helst tengdur við Hvíta húsið fór í ærna ferð um landið. Hann fór á tugi staða á landinu, tók mynd um sumar og svo næst um vetur á nákvæmlega sama punkti. Sverrir segir Sigmundi Erni frá þessari geggjuðu hugmynd – sem Sverrir lét verða af og hafði mikið fyrir - og hefur nú gefið út bók um með þessum tveggja árstíða „tvíburamyndum“ frá Íslenskum stöðum landins.
Whistler Blackcomb, stærsta skíðasvæði Norður Ameríku og Kanada er nú í boði. Nú er beint flug til Vancouver í hverri viku svo þessi draumur er að verða að veruleika. GB ferðir fara með skíðafólk þangað. Jóhann Pétur Guðjónsson segir Lindu Blöndal betur frá því.
Whistler og Blackcomb eru tvö samtengd fjöll sem bjóða uppá 200 merktar brautir, 3.300 hektara svæðis, hækkun frá 653 metrum í 2.300 metra, 37 skíðalyftur, 17 fjallaveitingastaði með plássi fyrir 6500 manns í einu. Lengsta skíðaleiðin er 7 1/2 km með 1521 metra fallhæð. Meðal snjókoma í Whistler eru tæpir 12 metrar á ári.
Meira af þessu í Ferðalagið kvöldsins með Lindu Blöndal og Sigmundi Erni – Öll mánudagskvöld.