Atli Stefán Yngvason og Kristján Thors fengu verðlaun fyrir frumlegustu brauðtertuna í Brauðtertukeppninni var haldin af Brauðtertufélagi Erlu og Erlu í samstarfi við Menningarnótt og listakonurnar Tönju Leví og Valdísi Steinarsdóttur á Menningarnótt Reykjavíkur árið 2019. Sjöfn Þórðar heimsækir þá félaga og fær þá til að svipta hulunni af frumlegustu brauðtertunni og sögunni bak við tilurð hennar sem er hin ótrúlegasta.
„Þegar við fórum í hugaflug að leita að hugmyndum hvernig við gætum skreytt brauðtertuna og tengt hana við hraðfisk, þá kom upp hugmyndin um skreið og skreiðfánann hans Jörundar hundagakonungs,“
segir Atli Stefán.
Einnig mun Sjöfn fá að sjá og bragða hina frumlegu brauðtertu sem er engri lík. Atla Stefáni og Kristjáni er margt fleira til lista lagt en að búa til brauðtertu og hafa þeir heillað fjölmarga með verkum sínum, en þeir eiga frumkvöðlafyrirtækið VEGAnGERÐINA sem bar sigur úr bítum í val fólksins í keppninni um Gulleggið árið 2019 fyrir íslenskan grænan próteingjafa fyrir heimili og veitingastaði.
Það má með sanni segja að þeir félagar hafi farið sigurför á árinu sem var að líða og stefna ótrauðir áfram með ný og áhugaverð verkefni í tengslum við matargerð á nýju ári. Meira um það í þættinum í kvöld.
Þátturinn Fasteignir & Heimili verður á dagskrá í kvöld klukkan 20.30 og aftur klukkan 22.30.