Hugmynd framsóknar er vond

Allir frambjóðendurnir sem mættu til umræðu um heilbrigðismál í Þjóðbraut telja ekki koma til greina að fara að tillögu Framsóknarflokksins um að leita að öðrum byggingarstað fyrir Landspítalann.

Þeir Jón Þór Ólafsson Pírati, Ólafur Þór Gunnarsson VG og Óli Björn Kárason Sjálfstæðisflokki voru allir á því að ekki komi til greina að leita að öðrum byggingarstað.

Ólafur Þór, sem er læknir á Landspítala, segir að slíkt muni fresta byggingunni um áratug hið minnsta.