Hugmynd ásmundar kæfð í fæðingu ?

Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra, viðraði hugmyndir sínar um að setja þak á leiguverð á Húsnæðisþingi á dögunum. Sagði hann stöðu leigjenda óboðlega, en um 50 þúsund manns eru nú á leigumarkaði og telja 20 prósent þeirra líklegt að þeir missi húsnæði sitt og fjórðungur fólks sem telst með lágar tekjur, segist búa við of þunga byrði þegar kemur að húsnæðismálum.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, virðist þó ekki sammála ráðherranum þegar kemur að því að setja þak á leiguverð. Hann segir slíkar hugmyndir vera vitleysu, líkt og sannast hafi í sósíalistaríkinu Venesúela:

„Stundum fallast manni alveg hendur, slík er vitleysan. Mér heyrist að víða sé hrifning með að setja þak á leiguverð íbúðarhúsnæðis. Þeir sem trúðu á sósíalismann víða um heim hafa reynt þetta. Síðast í Venesúela sem settu einnig þak á vexti og sykur og kannski eitthvað fleira. Heyrði þá sögu áðan að þegar sett hafi verið hámark á leiguverð í Víetnam hafi það valdið meiri tjóni á fasteignamarkaðnum en allar sprengjur bandaríkjamanna á Hanoi. Það er bara ein lausn á þessum vanda, en það er meira framboð á húsnæði. Stöðugleiki með tilheyrandi lækkun vaxta myndi líka hjálpa til.“

Nánar á

ttp://eyjan.dv.is/eyjan/2018/10/31/hugmynd-asmundar-kaefd-faedingu-stundum-fallast-manni-alveg-hendur-slik-er-vitleysan/