Hugleikur dagsson og áslaug arna verða meðal fyrstu gesta sigmundar í þættinum mannamál á hringbraut

Þann 3. október hefur Hringbraut sýningar á  þættinum Mannamál í umsjón Sigmundar Ernis.

Þátturinn hefur fylgt Hringbraut frá því að stöðin var sett á laggirnar.  Á meðal fyrstu gesta í vetur verða þau Ellen Kristjáns, Jón Óttar Ragnarsson, Hugleikur Dagsson, Örn Árnason og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Bætast þau ásamt fleiri því í hóp þeirra rúmlega 150 Íslendinga sem þegar hafa komið fram í þættinum.

Fylgist með þann 3. október á sjónvarpsstöð Hringbrautar.