Árni Bragason landgræðsulstjóri flutti ræðu á aðlfundi Landssamtaka sauðfjárbænda. Árni kom víða við í ræðu sinni og vék meðal annars að mikilvægi þess að við hugum að fæðuöryggismálum. Íslenska stjórnkerfið fær að mati Árna falleinkunní í fæðuöryggismálum.
Árni sagði orðrétt:\"Hvernig stöndum við Íselndingar okkur í fæðuöryggismálum? Stjórnkerfi okkar fær falleinkunn. Því miður. Við höfum ekki greint stöðu okkar sem skyldi.\"
Árni benti á að allar vélar til matvælaframleiðslu - hvort heldur þær eru á sjó eða á landi - eru knúnar af innfluttu eldsneyti.
\"Við erum einnig algjörlega háð innflutningi á kornvörum. Ef innflutningur stövast þá hrynur mjólkur- eggja - og kjúklingaframleiðsla og svínarækt.\"
Árni minnti í ræðu sinni á að íslenskir bændur hafi stöku sinnum vakið máls á fæðuöryggismálum en þeim er oftast svarað með því að þeir séu að reka áróður fyrir óhagkvæmum landbúnaði.
Íslenskir bændur geta ræktað olíuplöntur og bygg og framleitt mun meira af fóðrinu sem við þurfum sagði Árni.
Stjórnvöld þurfa að styðja við kynbætur og jarðræðktarrannsóknir á Íslandi. \"Því það er enginn á jörðinni sem býr við sömu hita- og birtuskyrði og við\" sagði Árni Bragason landgræðslustjóri.
Nánar www.bbl.is