Húðkrabbi nú algengari á norðurslóðum

Sérfræðingar í Noregi vara við mikilli aukningu húðkrabbameins þar í landi. Ný tilfelli húðkrabbameins í Noregi voru 1.719 í fyrra, en þar af greindust 839 karlar með meinið og 880 konur.
 

Aukin sólböð almennings eru talin ein af orsökum þess að húðkrabbameinstilfellum fjölgar að því er fram kemur í frétt RÚV um málið í dag en þar er fólk hvatt til þess að gæta varúðar og nota sólkrem.

Tíðni húðkrabbameins í Noregi nálgast það sem er í mun sólríkari löndum eins og Ástralíu - og er full ástæða til að ætla að ástandið sé áþekkt hér á landi; geislar sólar séu sterkari en verið hefur um langt árabil á sama tíma og sólbaðsdýrkun er orðin almennari og vinsælli.

Á vefnum doktor.is kemur fram að þekktasta orsök húðkrabbameina sé útfjólublá geislun: \"Mikil útfjólublá geislun í skamman tíma í einu sem orsakar bruna eykur hættu á sortuæxli og líklega á grunnfrumukrabbameini. Jöfn og stöðug geislun yfir langan tíma orsakar flöguþekjukrabbamein. Grunnfrumu- og flöguþekjukrabbamein eru algengust hjá fólki með ljósa húð, sem brennur auðveldlega, á svæðum sem sólin skín helst á, eins og á höfði, handarbökum og framhandleggjum. Geislaskemmdirnar safnast saman yfir æviskeið hvers og eins, allt frá barnsaldri, en geislaskemmdir sem verða hjá börnum og unglingum eiga mikinn þátt í myndun sortuæxla. Fæðingarblettir sem eru óreglulegir eiga einnig þátt í myndun sortuæxla og því þarf fólk sem er með óreglulega fæðingarbletti að fylgjast vel með sínum blettum. Eins ganga sortuæxli stundum í erfðir og til eru fjölskyldur með aukna tíðni þeirra.\"

Nánar er fjallað um orsakir og afleiðingar húðkrabbameins á doktor.is.