ASÍ, BSRB og Viðskiptaráð Íslands leggjast gegn því að laun æðstu ráðamanna hækki 1. júlí eins og gert er ráð fyrir í nýju kjararáðsfrumvarpi fjármálaráðherra. Samkvæmt skýrslu starfshóps um málefni kjararáðs eru laun íslenskra ráðamanna há í alþjóðlegu samhengi þrátt fyrir smæð landsins. ASÍ segir laun æðstu stjórnenda ríkisins hafa hækkað langt umfram almenna launaþróun og að sú framúrkeyrsla hafi ekki enn verið jöfnuð.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í umsögnum samtakanna við frumvarp Bjarna Benediktssonar um breytingar á kjararáði.
Forsætisráðherra skipaði starfshóp um kjararáð í janúar á síðasta ári sem skilaði síðan niðurstöðu sinni í febrúar. Starfshópurinn komst meðal annars að þeirri niðurstöðu að viðmið kjararáðs hefðu verið óskýr og ósamrýmanleg. Laun æðstu embættismanna ætti að úrskurða eftir ákveðinni launafjárhæð sem yrði síðan endurskoðuð á árs fresti. Í lok nóvember lagði fjármálaráðherra svo fram frumvarp þar sem stuðst var við tillögur starfshópsins.
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/vilja-ad-radamenn-fai-ekki-launahaekkun-i-sumar