HS Orka getur hvorki selt rafmagn sem fyrirtækið framleiðir eða nýtt virkjanakosti í nýtingarflokki til að búa til nýtt rafmagn til orkufrekra verkefna sökum þess að það er bundið í orkusölusamningi vegna álvers í Helguvík.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í morgun þar sem segir að fyrirtækið sé í reynd í spennitreyju vegna Helguvíkursamningsins. Á meðan hann sé í gildi geti það sig hvergi hreyft, en ekkert bólar þó á frekari uppbyggingu þess álvers.
HS Orka hefur reynt að komast undan samningnum við Norðurál vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík, en alls óvíst er með þau málalok. Vinni HS Orka málið má þó eitt teljast víst; að álver Norðuráls í Helguvík sé endanlega úr sögunni.
Ásgeir Margeirsson forstjóri HS Orku segir við Fréttablaðið að fyrirtækið vilji að „sjálfsögðu selja orku eins og unnt er, Norðuráli eða öðrum, en staðan er sú að HS Orka gerði samning við Norðurál Helguvík um umtalsvert mikla orku og uppi er ágreiningur um þýðingu hans í dag, nú þegar álverið er hvergi nærri byggt og ekki unnt að afhenda orku þangað.“
Orkusölusamningurinn sem um ræðir er upp á 150 MW af orku. HS Orka getur ekki selt þá orku til annars kaupanda á meðan að hann er í gildi. Í dag, sjö árum eftir að samningurinn var undirritaður, er fyrirtækið því bundið inni í samkomulagi með þorra þeirrar orku sem það telur sig geta framleitt og selt í nánustu framtíð sem virðist ekkert vera að fara að verða að veruleika.