Hryllingur: sex börn gerð út í vændi hér á landi – telur níðinga framleiða barnaklám á íslandi

Sex mál þar sem níðingar seldu aðgang að börnum haf verið til meðferðar hjá Stígamótum. Þá telur Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn líklegt og að grunur væri um að Íslendingar hefði pantað kynferðisbrot á börnum í gegnum netið. Það fer þannig fram að brotið er á barni í til dæmis fjarlægu landi samkvæmt fyrirmælum níðings hér á landi og síðan er efninu streymt til viðkomandi.Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir í samtali við RÚV, að henni þyki líklegt að myndefni af barnaníði sem framleitt hér á landi og ofbeldinu þá streymt til níðinga erlendis.

Þá sagði Guðrún einnig í samtali við RÚV: „Nýlega þegar við vorum í hóphandleiðslu og  fórum yfir flókin mál, þá kom í ljós að það voru sex mál á þessu ári til umfjöllunar Stígamóta, þar sem konur höfðu sem börn verið látnar ganga á milli manna. Hreinlega um barnavændi að ræða. Þetta eru allskonar mál, og meðal annars mál þar sem fleiri en eitt barn voru með svo og svo mörgum mönnum í einu, og börn sem karlar veittu öðrum körlum aðgang að.“

Þá segir Guðrún einnig:

 „Allt þetta barnaklám sem verið er að fást við í dag, það er alþjóðlegt, og það væri of einfeldningslegt ef við héldum að við myndum sleppa.“