Hryllingur á vestfjörðum: hló og sýndi glæpinn á skype – deildi myndum á instagram - skilorð fyrir að nauðga vini sínum

Karlmaður var í gær dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Vestfjarða fyrir að nauðga karlkyns kunningja sínum. Þá tók hinn dæmdi myndir af þolandanum. Einnig hringdi gerandinn í vinkonu þolandans í gegnum Skype og sýndi henni hvað hann hefði gert. Segir vinkonan að maðurinn hafi verið hlæjandi á meðan. Maðurinn átti svo eftir að deila myndum af þolandanum á samfélagsmiðlum. Þolandinn leitaði til Neyðarmóttöku vegna kynferðisofbeldis á bráðamóttöku Landspítala, þá hafði hann ekki getað haft hægðir um tíma. Fyrir þetta fékk gerandinn skilorðsbundinn dóm.

Maðurinn neitaði sök en hann var dæmdur til að greiða þolandanum eina milljón króna með vöxtum. Einnig var honum gert að greiða allan sakarkostnað, sem nemur samtals rúmum 2,6 milljónum króna.

Nauðgunin átti sér stað að kvöldi föstudagsins 29. apríl 2016 á þáverandi heimili ákærða. Bar hann fyrir sig minnisleysi en játaði þó að hafa átt samskipti við þolandann og sent myndir af verknaðinum. Þessar myndir lágu fyrir í gögnum málsins. Þá mundi hann óljóst eftir að hafa talað við einhvern á Skype um kvöldið, en mundi ekki við hvern nákvæmlega.

Þolandinn sagðist hafa verið í stroki þegar brotið átti sér stað. Hann hafi farið til hins ákærða sem hann sagðist þekkja í gegnum aðra. Þeir hafi pantað sér pítsu í sameiningu og farið í bíltúr. Hinn ákærði hafi þá boðið sér lyf til kaups sem hann þáði og eftir það mundi hann ekki meira eftir kvöldinu. Síðar hefði hann séð áðurnefndar myndir af sem höfðu farið í dreifingu.

Í dómnum er haft eftir vitni sem þekkti hinn dæmda. Tvær vinkonur voru hjá henni þegar gerandinn hafði samband í gegnum Skype. Þar sá hún þolandann „út úr dópaðan“ í sófanum hjá hinum ákærða sem var að taka myndir af manninum sem hann hafði nauðgað. Myndirnar sendi hann svo til vinkonu sinnar. Í dómnum segir:

„Ákærði hefði hlegið að brotaþola  sem var meðvitundarlaus og lá á gólfinu. Kvaðst vitnið hafa séð ákærða ýta brotaþola í gólfið. Hún kvaðst hafa séð ákærða girða niður um brotaþola og taka myndir af honum, kynfærum hans og rassi.“

Þá náði ákærði í ís og setti á þolandann og fannst það fyndið. Vinkonan tók skjáskot til að senda lögreglu. Seinna deildi gerandinn myndunum á samfélagsmiðlum. Í dómnum segir einnig:

„Þá liggur fyrir skýrsla frá Neyðarmóttöku vegna kynferðisofbeldis á bráðamóttöku Landspítala en þangað leitaði brotaþoli 4. maí 2016 og hafði þá haft blæðingar úr endaþarmi og ekki getað haft hægðir. Sýndi skoðun læknis, sem staðfest var fyrir dómi, nýlega sprungu í endaþarmsopi.“

Í dómnum segir að kynferðisbrotið var alvarlegt og niðurlægjandi og beindist gegn manni sem er minni máttar og taldi ákærða vin sinn, en þolandinn glímir við raskanir. Þá ákvað dómari að meta til refsilækkunar að gerandinn var ekki orðinn 18 ára og hann hafi hætt neyslu. Fyrir brot sitt var gerandinn dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi.