Bandaríska utanríkisleyniþjónustan CIA deildi nýverið upplýsingum með Rússum. Þessar upplýsingar ónýttu áform hryðjverkasveita íslamska ríkisins um að vinna hermdarverk í Sankti Pétursborg í Rússlandi.
Óvanalegt er að segja frá samvinnu af þessu tagi. Vakna spurningar um hvaða tilgangi það þjónar að opinbera slíkt.
Venjulega þarf að gæta þess vandlega að hylma yfir verklag ríkisstofnana sem vinna á gráu svæði við upplýsingaöflun með hátækniaðferðum og með hrottalegum hætti.
Og afneita opinberlega starfsháttum og jafnvel tilvist ríkisstofnana sem heimuglega snudda og snuðra og hnýsast.
Nú er hins vegar brugðið á það ráð að segja frá. Þannig eru skilaboð send. En aðeins viðtakandinn (sem ekki er þekktur) skilur þau skilaboð.