Samkvæmt frétt vefmiðils RÚV í morgun er Majid, sem kemur upphaflega frá Írak, sagður hafa verið í Sýrlandi og starfað þar með vígamönnum hryðjuverkasamtakanna Íslamska ríkið. Upplýsingar frá leyniþjónustustofnunum í Evrópu benda til að maðurinn tilheyri hópi íslamskra hryðjuverkamanna sem hafi verið að undirbúa árásir í Svíþjóð.
\"Þetta er hæsta viðbúnaðarstig sem við höfum séð hér í Svíþjóð gegn hryðjuverkum,“ segir Gunnhildur Lily Magnúsdóttir, lektor í alþjóðastjórnmálum í Malmö, en rætt var við hana á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun.
Gunnhildur segir við RÚV að mikill óróleiki hafi verið í samfélaginu í Svíþjóð frá því í sumar: \"Það má kannski segja að sænska sjálfsmyndin sé í talsverðri kreppu því Svíar vilja gjarnan vera fyrirmynd eða stórveldi þegar kemur að fjölmenningu og móttöku flóttafólks. Það er mikil hræðsla og til dæmis nú í vikunni hefur fólk notað almenningssamgöngur mun minna.“
Gunnhildur segir ástandið ala á tortryggni: \"Það má segja að stærsta verkefnið núna sé að koma á auknu öryggi í landinu og þá meina ég ekki endilega að lögreglan verði meira sýnileg heldur að fólk fái til baka þá tilfinningu að það sé öruggt í sínu landi. Það er eitthvað sem gerir lífið bærilegt og eðlilegt aftur, “ segir hún við fréttavef RÚV