Það eru sem betur fer litlar líkur á því að árásir eins og þær sem gerðar hafa verið á Stóra-Bretlandi undanfarið verði gerðar hér á landi sagði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í viðtali við RÚV. Hann segir að samband hafi verið haft við embætti Ríkislögreglustjóra sem meta á hryðjuverkaógnina hér á landi.
Lögreglan á höfuðborgarasvæðinu hefur óskað eftir áhættumati frá greiningardeild Ríkislögreglustjóra vegna þeirrar hryðjuverkaógnunar sem vofir yfir Evrópu. Einkum er óskað eftir mati greiningardeildarinnar í tengslum við þær fjölmörgu hátíðir sem haldnar verða í höfuðborginni í sumar.
Stór ökutæki hafa verið notuð til að aka niður gangandi vegfarendur og hafa því margir látist eða örkumlast. Slíkt vekur upp spurningar um hvort hætta sé á slíkum hryðjuverkum hér á landi.
rtá
Nánar www.ruv. www.mbl.is