Hrunið blasir við

Ég þekki af eigin reynslu úr stjórnmálunum hve sárt er að horfa upp á byggðir í landinu grotna niður af því að fjármagn skortir til fjárfestinga í öflugu atvinnulífi. Svo koma skyndilega norskir auðrisar með fullar hendur fjár og vilja setja upp risafiskeldi í opnum sjókvíum. Er það happafengur fyrir fólkið í dreifðum byggðum og frelsandi lausn fyrir stjórnmálamenn?

Hvað er það sem hvetur norska auðrisa til fjárfestinga í opnu sjókvíaeldi á Íslandi? Fullvissan um að mega gera það sem þeim er bannað að gera heima hjá sér í ljósi reynslunnar. Flóknara er það ekki. Reynslan af opna eldinu í nágrannalöndunum er skelfileg. Þar hefur nú víðast verið lokað á nýtt sjókvíaeldi og settar fram áætlanir um að það heyri brátt sögunni til, fari upp á land eða í lokuð kerfi. Það er ekki lengur dýrara en opna eldið. Hins vegar er eftirsóknarvert að helga sér ný svæði í landi þar sem eldisleyfin eru nánast ókeypis. Leyfin sem Úrskurðarnefndin var núna að ógilda hefðu kostað 45 milljarða í Noregi samkvæmt uppboðum þar í landi. Svo er hvetjandi að hafa stjórnmálamenn ginnkeypta fyrir hvaða atvinnuuppbyggingu sem er í veikum byggðum, eftirlitskerfi í skötulíki og regluverk vanþróuð, en megi móta með hagsmuni eldisins að leiðarljósi.

Nánar á

https://www.frettabladid.is/skodun/hruni-blasir-vi