Hrókurinn og kalak: safna jólagjöfum fyrir grænlensk börn

„Það er alltaf einn af hápunktum ársins þegar við sendum Stekkjarstaur til Grænlands, klyfjaðan gjöfum fyrir okkar ungu vini,“ segir Hrafn Jökulsson um jólapakkaverkefni Hróksins og Kalak, vinafélags Íslands og Grænlands. Líkt og undanfarin ár fá öll börn í Kulusuk, sem er næsti bær við Ísland, jólapakka frá Íslandi, en auk þess senda Hrafn og félagar jólagjafir til tuga barna og ungmenna, vítt um Grænland.

„Þetta er ótrúlega skemmtilegt og gefandi verkefni. Lífskjör á Austur-Grænlandi er þau verstu á Norðurlöndum, og gjörólík því sem langflestir Íslendingar eiga að venjast. Fæst af börnunum fá margar jólagjafir, og því er yndislegt að geta með góðra manna hjálp sent þennan vináttuvott sem vonandi vekur gleði í ungum hjörtum, og sýnir Grænlendingum að á Íslandi eiga þeir vinum að fagna.“

\"\"

Hrafn með prjónaföt sem eru meðal þess sem fara í grænlensku jólapakkana

Starfsfólk Air Iceland Connect safnar jólagjöfum

Hrafn segir að margir leggi Hróknum, Kalak og Stekkjarstaur lið. „Air Iceland Connect sér að vanda um að koma bæði pökkum og jólasveini til Grænlands, án endurgjalds. Og ekki nóg með það: Hið frábæra starfsfólk flugfélagsins tekur þátt í söfnun jólagjafa af lífi og sál.“

En hvað er í pökkunum til grænlensku barnanna? Hrafn segir að þar kenni margra grasa. „Við fáum nöfn og aldur barnanna, svo þau fái öll eitthvað sem hæfir. Í hverjum pakka kennir margra grasa. Þar eru leikföng, föndurdót, föt, tuskubangsar og ekki síst prjónaföt frá okkar stórkostlegu íslensku hannyrðakonum í prjónahópi Gerðubergs og vítt um land.

\"\"

Kulusuk er næsti bær við Ísland. Íbúar þar eru um 250

Heiðbjört gefur elstu börnunum spjaldtölvur

Fyrirtæki og einstaklingar leggja sitt af mörkum. „Þarna gildir auðvitað að margt smátt gerir eitt stórt. En ég verð að nefna framlag Heiðbjartar Ingvarsdóttur, sem er einn dyggasti liðsmaður Hróksins og Kalak. Hún hefur undanfarin ár gefið ótal gjafir í jólapakkasöfnunina. Heiðbjört lætur ekki þar við sitja, hún gefur jafnan elstu krökkunum í grunnskóla Kulusuk spjaldtölvur, og nú eiga átta krakkar von á slíkum glaðningi frá kraftaverkakonunni Heiðbjörtu.“

\"\"

Hrafn og Heiðbjört með hluta jólapakkanna sem eru á leið til ungra grænlenskra vina

Hrafn segir að söfnun jólagjafa standi enn yfir, og hvetur þau sem geta til að leggja lið. „Við verðum með opið í Pakkhúsi Hróksins, Geirsgötu 11 við Reykjavíkurhöfn, á laugardaginn klukkan 14 til 16. Þar tökum við á móti gjöfum og höldum áfram að pakka. Ef fyrirtæki eða einstaklingar vilja koma til okkar glaðningi og vera með, þá er bara endilega að hafa samband við mig í [email protected] eða á Facebook,“ segir Hrafn, sem er greinilega kominn í jólaskap.