\"Almenningur hefur sett fram kröfu um siðaskipti í íslenskum stjórnmálum. Eftir fjölmennasta mótmælafund sögunnar á mánudaginn blandast engum hugur um að stjórnmálaflokkarnir eiga enga undankomuleið frá því verkefni að endurbæta stjórnmálinætli þeir sér að eiga einhvert traust kjósenda.\"
Þetta skrifar Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins á vefsvæði sitt í dag og segir birtingu Panama-skjalinu valda straumhvörfum í íslenskri pólitík: \"Það er athyglisvert,\" skrifar hann \"að það eru ekki upplýsingar um bein lögbrot ráðamanna sem kveikja eldana heldur snýst reiðin meira að sérhygli og sérmeðferð auðmanna og valdamanna.\"
Hann segir kröfu almennings verea þá að þessir þjóðfélagshópar deili kjörum með almenningi, taki þátt í samfélaginu og leggi sinn skerf af mörkum til
þess að standa undir velferðarkerfinu. Það sé óásættanlegt að auðugt fólk fái lækkun á sköttum og skyldum en sjúklingar og aldraðir búi við skerðingu á
sínum kjörum vegna þess.
Kristni er nokkuð niðri fyrir: \"Það er óásættanlegt að sumir geti geymt fé sitt í öðru efnahagskerfi og annarri mynt en almenningi er gert að búa við, sérstaklega meðan gjaldeyrishöftin binda landsmenn við íslensku krónuna og háu vextina sem einkenna íslenskt þjóðfélag. Þeir sem nýta sér fjárhagsleg hagkvæm lagaleg úrræði fengin fram vegna áhrifa og tengsla við stjórnmálaflokkana hafa gengið algerlega fram af almenningi.\"
Hann segir reiðina vera svo mikla að engu máli skipti sú málsvörn valdaflokkanna að margt gangi vel í þjóðfélaginu, kaupmáttur fari vaxandi, samningar komnir við kröfuhafa í íslensku gjaldþrotabankabúin og fyrirsjáanlegt sé að gjaldeyrishöftum verði aflétt. Ríkisstjórnin hafi vissulega af mörgu að státa sem til framfara horfi, en eitt öðru fremur hafi orðið henni að falli: \"Það er gamla hugarfarið,\" skrifar Kristinn.
Hann segir þjóðina hafa áttað sig endanlega á þessu eftir Wintrismálið, aflandsfyrirtækjaflækjur forystu Sjálfstæðisflokksins, Kastljósþáttinn á sunnudaginn og
hrokafulla framgöngu oddvita yfirstéttarinnar, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins og forsætisráðherra: \"Öll þessi atburðarrás hefur dregið fram í dagsljósið úr skúmaskotum karabíska eyjahafsins að gamla spillta hugarfarið frá 2007 sem fór með þjóðina fram af bjargbrúninni er þarna ennþá.\"
Hann þekkir vel söguna: \"Stjórnarflokkarnir frá 1995-2007 um 12 ára skeið , Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, fóstruðu með margvíslegum pólitískum áherslum um þjóðfélagsbreytingar í anda nýfrjálshyggjunnar hugarfar sérhyggjunnar, einkum innan fjármálakerfisins og sjávarútvegsins. Þetta er alþjóðleg þróun sem verið hefur í gangi meira og minna um 30 ára skeið. Enda má sjá að hneykslismálin vegna Panama skjalanna teygja sig um allan heim, frá Íslandi
til Úkraníu og frá Rússlandi til Bretlands.\"
Hann segir að sjúkdómseinkenni þessa hugarfars sé skefjalaus egóismi: \"Hann birtist í því að sem minnstar hömlur eigi að leggja á gróðafíkn manna og að það sé þjóðfélaginu fyrir bestu að fáir verði ríkir og valdamiklir. Auði og völdum fylgir spilling og kúgun. Það höfum við mátt sjá á Íslandi. Það höfum við líka
fengið að sjá á Vestfjörðum,\" skrifar hann úr sínum heimaranni.
Hann víkur svo að því sem hann kallar blekkingu aldarinnar: \"Íslenskur almenningur hélt að stjórnarflokkarnir gömlu hefði séð að sér eftir eitt kjörtímabili í stjórnarandstöðu eftir hrun og treystu þeim fyrir stjórnartaumunum á nýjan leik. Fólkið hélt að egóisminn hefði þokað fyrir samfélagslegri ábyrgð. Það hélt að forystumenn þessara flokka hefðu lært af hruninu og endurbætt sín siðferðilegu viðmið. Fólkið hélt að þessi hópur þjóðfélagins væri búinn að læra af hruninu og hefði úthýst spillingunni sem var orsökin af þessum óförum.\"
En svo hafi Wintris-málið komið og almenningur hafi séð inn í hugarheim yfirstéttarinnar; ekkert hafi breyst: \"Það er enn sami egósminn. Yfirstéttin telur
enn að eðlilegt og sjálfsagt sé að hún búi í öðrum heimi en almenningur. Henni finnst enn eðlilegt að koma sér undan því að leggja til samfélagsins.
Henni finnst enn eðlilegt að geyma eignir sínar erlendis í leyniskjólum. Að vísu hefur það þó breyst að hin spillta yfirstétt veit að almenningi líkar þetta
ekki og fer þess vegna með löndum í skjóli nætur.\"
Hann sér fram á tíma breytinga: \"Það hefur líka breyst að yfirstéttin veit að almenningur mun ekki eftir búsáhaldabyltinguna taka því þegjandi að hugarfarið er enn það sama. Þess vegna var mikilvægt að leyna því að hugarfarsbreytingin var gabb aldarinnar. En Wintris opinberaði sannleikann. Og vonbrigði almennings eru sár og enn sárari af því að hann var blekktur. Þess vegna falla hrokagikkir valds og spillingar hver af öðrum með forsætisráðherrann fremstan í flokki. Það var kominn tími til að siðaskiptin í íslenskum stjórnmálum hæfust fyrir alvöru.\"