Hringvegurinn enn illfær sakir snjóa

Bílstjórar á fiskflutningabílum muna ekki aðra eins tíð um norðaustanvert landið en þjóðvegurinn á milli Eyjafjarðarsvæðisins og Austfjarða hefur svo oft verið illfær á vetrinum sem á að heita liðinn að ekki verður komið tölu þar á.


Miklir fiskflutningar eru alla jafna um hringveginn sem liggur á þessum kafla yfir Mývatns- og Möðrudalsöræfin, en þar er éljagangur í dag og víða miklir hálkublettir. Til marks um veðurhörkuna er að nú er krapasnjór og ofankoma á Hólasandi þar sem vegurinn á milli Mývatns og Húsavíkur liggur. Þá er enn snjóþekja á fjallvegum á Austurlandi og stöku heiðar ennþá ófærar.


Fiskflutningamenn segja að tafir af völdum þessa veðurlags það sem af er ári séu orðnar æði miklar og tjónið sé eftir því verulegt. Ástandið norðaustanlands hefur verið áþekkt því sem gerst hefur á Vestfjörðum, þar sem mikið er um fiskflutninga, en þar hafa vegir á láglendi verið illfærir stórum bílum svo dögum skiptir og heiðar að jafnaði viðsjárverðar, ef ekki torfærar. Á Vestfjörðum er nú snjóþekja á Þröskuldum en hálkublettir á Steingrímsfjarðarheiði. Þungfært er norður í Árneshrepp.