Venjulegir fréttalesendur hafa ekki haft undan að skemmta sér við fréttir af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.
Í síðustu viku varð val Miðflokksins á listabókstafnum M tilefni til fleiri exem-brandara en nokkur kærir sig um að muna.
Á mánudag hugðist Sigmundur svo hafa fullnaðarsigur í Wintris-málinu með því að sýna fram á, að þau hjón hefðu ofgreitt skatta vegna fyrirtækisins.
Þegar staðreyndin var sú, að þau ákváðu eftir að upp komst um Wintris að „leiðrétta“ skattframtöl sín aftur í tímann og þá var hækkaður á þau skatturinn. Þau samþykktu það og borguðu.
Þau gerðu hins vegar athugasemd við eina hlið málsins, sem gerði þeim kleift að græða á gengissveiflum krónunnar, og kærðu það tiltekna atriði til yfirskattanefndar. Hún féllst á erindið og úrskurðaði þeim hjónum í hag.
Þess vegna lækkaði skatturinn eftir að hann hafði áður verið hækkaður. Það var ofgreiðslan, sem átti að sýna fram á þjóðhollustu og sannleiksást Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Og vitaskuld ást á íslensku krónunni.
Í gærkvöldi birti svo Miðflokkurinn merki sitt, prjónandi graðhest sem virðist krafsa í Norðurljósin og bjóða öllum þeim birginn sem dirfast að ögra honum.
Yfir þessu gátu landsmenn skemmt sér fram yfir miðnætti, með tilheyrandi tilvísunum í einhyrninga og My Little Pony, svo fátt sé nefnt.
Í meðfylgjandi texta Miðflokksins er kostum íslenska hestsins réttilega lýst, en tvennu þó sleppt sem rímar samt vel við útlendingaparanoju formannsins.
Íslenskir hestar sem fara til útlanda eiga ekki afturkvæmt.
Íslenskir hestar sem fara til útlanda þola jafnan illa hitabreytingarnar og fá þá hvaða kvilla?
Jú, exem.
Hestaexem.
Þannig er hringnum lokað og Sigmundi Davíð tekst áfram að halda sér í fréttunum.
Sem Hringbraut tekur hér með þátt í.