Hringjabrú ólafs vígð í köben í dag

Hringjabrúin svonefnda sem hönnuð er af myndlistarmanninum Ólafi Elíassyni, verður vígð í Kaupmannahöfn í dag. Brúin og hönnun hennar hefur fengið einkar lofsamlega dóma í danska dagblaðinu Politiken.
 

Brúin, sem kostaði hálfan annan milljarð íslenskra króna, liggur yfir Kristjánshafnarsund, á milli Applebys torgs og Kristjánsbrúar. Hún samanstendur af fimm kringlóttum pöllum og dregur nafn sitt af þeim auk þess sem hún gerir fólki kleift að ganga hring um sundið.

Gagnrýnandi Politiken gefur brúnni og hönnun hennar fimm stjörnur af sex mögulegum. Hún sé til þess gerð að ferðalangar staldri við og virði hana fyrir sér. Hönnun hennar sé ögrandi og falleg í senn.

Fimm gömul skipsmöstur eru á brúnni. Þau gegna engum tilgangi í burðarvirki hennar, heldur eru þau tilvísun í skipin sem lágu við höfnina á sínum tíma. Þá telur gagnrýnandi Politiken að möstrin séu vísun í sjómannsferil föður hans Ólafs, sem gegndi starfi kokks á togara á árum áður.