Það var árið 1999 þegar eldri konu hringdi í Ská 1 sem síðar varð Skár Einn en þá endursýndi stöðin Dallas sem áður höfðu heltekið þjóðina þegar þeir voru sýndir á Ríkisútvarpinu. Sverrir Agnarsson, fyrrverandi formaður Félags múslima á Íslandi rifjar upp afar skemmtilega sögu frá þessum tíma og segir á Facebook að árið 1999 hafi í raun fyrsta gagnvirka sjónvarpið orðið til.
Dallas var sýnt á Skjá 1 á hverjum eftirmiðdegi og við gefum Sverri orðið:
„Þá hringdi gömul kona í Skjá 1 stuttu áður en hann varð Skjár einn og hún segist hafa misst af þættinum daginn áður og spyr hvort hann verði endurtekinn.“
Hólmgeir Baldursson, stofnandi stöðvarinnar tók við símanum. Við hlið hans var Kári Waage sem einnig var starfsmaður. Sverrir taldi að Kári hefði tekið símann en Hringbraut ræddi við Kára sem kvaðst hafa verið áhorfandi að því sem gerðist næst.
Hólmgeir spurði góðlátlega: „Ertu ekki heima núna vinan.“
Konan svaraði að svo væri.
Þá sagði Hólmgeir: „Sestu þá í stólinn þinn elskan og kveiktu á sjónvarpinu - ég skal bara sýna þér hann núna og setti spóluna í tækið og Dallasþátturinn sem hún hafði misst af rúllaði af stað.“
Kári Waage staðfesti þetta hefði átt sér stað. Í samtali við Hringbraut segir Kári:
„Ég stóð við hliðina á honum. Það voru einhver tónlistarmyndbönd í loftinu og hann bara skellti einum Dallas-þætti í tækið fyrir kerlinguna, enda var hún mjög ánægð.“