Hringdi 82 sinnum í neyðarlínuna

Kófdrukkin kona á áttræðisaldri var handtekin af lögreglunni í Reykjavík í nótt eftir að hafa hringt nokkurn veginn látlaust í Neyðarlínuna, eða samtals 82 sinnum, án þess að nokkuð amaði að henni. 

Lögreglan var fengin til að tala konuna til, enda mjög alvarlegt að trufla starfsemi Neyðarlínunnar með þessum hætti og getur varðað sektum og jafnvel refsingu. Konan hélt þó áfram uppteknum hætti sem varð til þess að lögreglan kom aftur á heimili hennar og handtók hana. Hún sefur nú úr sér vímuna í klefa hins opinbera.

Þá var önnur kona, en öllu yngri, einnig handtekin í nótt eftir að hafa hringt í Neyðarlínuna án tilefnis, en þar eð hún lét ekki heldur verða af uppátæki sínu endaði hún líka í vistarverum lögreglunnar. Hún reyndist um þrítug og vera ofurölvi.

Neyðarlínan sinnir bráðatilvikum og símanúmer hennar, 112 - einn, einn, tveir - er aðeins fyrir þá sem þurfa á bráðnauðsynlegri aðstoð að halda.