Maður í annarlegu ástandi hringdi um klukkan hálftólf á föstudagskvöld alls 50 sinnum í Neyðarlínuna.
Lögreglumenn fóru að heimili viðkomandi og ræddu við hann. Hann lét ekki af hegðun sinni. Þá handtók lögreglan manninn og vistaði hann í fangageymslu. Væntanlega hefur gemsi mannsins verið tekinn af honum áður en til þess var gripið en það kemur þó ekki fram í upplýsingum hjá lögreglu.
Fleiri voru vistaðir í fangageymslum í nótt eftir afbrot eða hegðun. Stolið var úr bílum og veist að dyraverði og endaði hvort tveggja með varðhaldsvist.