Hátíðleiki og fjölbreytni einkennir fyrstu jóladagskrá Hringbrautar en þar fara saman sýningar á metnaðarfullum heimildarþáttum og úrval margs forvitnilegasta efnis sem sýnt hefur verið á stöðinni frá því hún hóf göngu sína 18. febrúar í ár.
Á Aðfangadagskvöld verður sýnd verðlaunuð heimildarmynd Páls Steingrímssonar um hrafna og lifnaðarhætti þessa merkilega fugls hér á landi, en þar á eftir kemur klukksutundarlöng samantekt úr þáttunum Bókin sem breytti mér þar sem Sigmundur Ernir ræðir við bókafólkið Einar Má Guðmundsson, Gerði Kristnýju, Silju Aðalsteinsdóttur og Sjón um bækurnar og höfundana sem hafa haft mest áhrif á það, en þættirnir hafa notið mikilla vinsælda á stöðinni í haust og byrjun vetrar.
Að kveldi Jóladags verður sýndur heimildarþáttur um goðsögnina Binna í Gröf, svo og fyrri hluti heimildarmyndar um barnabókarhöfundinn Guðrúnu Helgadóttur í tilefni af áttræðisafmæli hennar, en þar á eftir verður rómað Mannamálsviðtal Sigmundar Ernis við Vigdísi Finnbogadóttur endurflutt, en það var sýnt í tvennu lagi í árdaga Hringbrautar og vakti þjóðarathygli, enda reyndist þar vera komið eitt persónulegasta viðtal sem Vigdís hefur veitt í sjónvarpi.
Að kveldi annars í jólum frumsýnir Hringbraut heimildarmyndina Tiasha og Atreye: Ættleiðingar á Indandi eftir Heiði Maríu Rúnarsdóttur kvikmyndargerðarkonu, en myndin fjallar um hjónin Laufeyju og Sigfús og þeirra sögu; af hverju þau ákváðu að ættleiða tvær telpur frá Indlandi, hvernig þau fóru að því og hvernig stelpunum hefur gengið í nýju heimalandi, en fjölskyldunni er svo fylgt eftir þar sem hún heimsækir barnaheimilið á Indlandi sem stúlkurnar voru á. Á eftir þessari athyglisverðu mynd verður svo seinni hluti heimildarþáttarins um Guðrúnu Helgadóttur sýndur og þar á eftir kemur svo útsending á aðventuþætti Ólafanna sem frumsýndur var fyrr í mánuðinum.
Á sunnudagskvöld, þriðja í jólum, birtist seinnihluti Mannamálsþáttarins um Bubba Morthens þar sem goðsögnin gerir meðal annars upp erfiðan skilnað sem var við það að buga kappann, en í þættinum horfist Bubbi í augu við sjálfan sig með einkar persónulegum og opinskáum hætti. Á eftir Bubba kemur svo þátturinn Stjórnandinn: Áhrifamestu konurnar þar sem Björk Eiðsdóttir ræðir við áhrifakonurnar Agnesi M. Sigurðardóttur, biskup, Kristínu Eysteinsdóttur, leikhússtýru og Ólafíu B. Rafnsdóttur formann, VR, en seinni hluti þáttarins er svo á dagskrá kvöldið eftir, en þar koma við sögu Ásta Rut Jónsdóttir, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna, Guðrún Hafsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Kjöríss og Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri RÚV. Í þáttunum er leitast við að kanna hvernig konur stjórna og hvort þær geri það að einhverju leyti öðruvísi en karlar og spurt hvar áherslur þeirra við stjórnun liggja. Stjórn upptöku annaðist Pétur Fjeldsted.
Í sem skemmstu máli er jóladagskráin því svona:
Aðfangadagur:
20:00: Hrafninn - úr smiðju Páls Steingrímssonar
21:00: Bókin sem breytti mér - rætt við fjóra höfunda
Jóladagur:
20:00: Binni í Gröf - heimildarþáttur
20:30: Guðrún Helgadóttir - fyrri þáttur
21:00: Mannamál - Vigdís Finnbogadóttir
Annar í jólum:
20:00: Tiasha og Atreye: Ættleiðingar á Indlandi
20:30: Guðrún Helgadóttir - seinni þáttur
21:00: Ólafarnir - aðventuþáttur
Þriðji í jólum:
20:00: Mannamál - Bubbi Morthens 2
20:30: Stjórnandinn - áhrifamestu konurnar
21:00: Bókin sem breytti mér - rætt við fjóra höfunda
Sem fyrr segir er svo seinnihluti þáttarins Stjórnandinn - áhrifamestu konurnar, sendur út mánudagskvöldið 28. desember klukkan 20:30, en auk þess má geta að í klukkustundarlöngum Ritstjórunum klukkan 21:00 á þriðjudagskvöld á milli jóla og nýárs verður árið gert upp með þrautreyndu fjölmiðlafólki.
Starfsfólk Hringbrautar óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla, árs og friðar og þakkar afar hlýjar móttökur nýrrar sjónvarpsstöðvar á fyrsta starfsári sínu.