Hringbraut býður upp á sérstakan sjónvarpsþátt um tekjuþróun á Íslandi á þriðjudagskvöld klukkan 20:00 þar sem Benedikt Jóhannesson, útgefandi Frjálsar verslunar verður aðalgestur.
Frjáls verslun hefur í yfir 20 ár gefið út vandaða úttekt á tekjum þúsunda Íslendinga í sérstöku tekjublaði um þetta leyti árs - og þekkir Benedikt manna best til þróunar tekna landsmanna á þessum tíma.
Í þættinum á þriðjudagskvöld, sem dagskrárstjórinn Sigmundur Ernir Rúnarsson stýrir mun hann spyrja Benedikt í þaula um hvernig tekjur mismunandi hópa samfélagsins hafa þróast á undanliðnum áratugum, hvaða stéttir hafa sótt mest fram, hverjar hafa helst setið eftir, auk þess sem eðlilegt launabil ber á góma og launamun kynjanna, en athygli vekur að aðeins þrjár vkonur eru á lista yfir 20 hæstu gjaldendur í ár.
Aðrir gestir verða einnig kynntir til leiks í þættinum til að skoða mismunandi launakjör á almennum og opinberum vinnumarkaði, svo og til að fjalla um tekjuskattskerfið og samkeppnisstöðu Íslands þegar kemur að launum og kjörum almennt.