Hringbraut sýnir vesturfaraþætti

Sýningar á heimildarþáttaröðinni Í vestur-víking hefjast á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld en um er að ræða sjö þátta röð um aðdraganda vesturferðanna undir lok þarsíðustu aldar og veruleikann sem beið Íslendinga í nýjum heimi.

Óhætt er að segja að hér sé um mjög vandaða sjónvarpsþætti að ræða, enda mikið lagt á að útvega forvitnilegt myndefni til að segja söguna alla af því þegar Íslendingar tóku sig upp, einkum um norðaustanvert landið og sigldu utan vegna langvarandi harðræðis heima fyrir.

Jón Hermannsson kvikmyndagerðarmaður hafði yfirumsjón með vinnslu þáttanna sem voru unnir fyrir all nokkrum árum en lifa tímans tönn, enda efnið jafn sígilt og það er forvitnilegt fyrir nýja kynslóð íslendinga. Þulur í þáttunum er Baldvin Halldórsson leikari.

Vesturfararnir eru á dagskrá Hringbrautar á fimmtudagskvöldum klukkan 21:30.