Sjónvarpsstöðin Hringbraut sýnir beint frá sundkeppni Smáþjóðaleikanna sem nú standa yfir í Reykjavík, en útsendinguna er hægt að nálgast á vefsvæði miðilsins, hringbraut.is. Sent verður út alla keppnisdagana.
Smáþjóðaleikarnir voru settir í gærdag en þar tekur íþróttafólk frá níu smáríkjum Evrópu þátt í ellefu keppnisgreinum, þar á meðal blaki, fimleikum, golfi, strandblaki, tennis, skotíþróttum og sundi en keppt er í síðastnefndu greininni í Laugardalslaug þar sem útsendingarnar á hringbraut.is fara fram.
Íslenskir þátttakendur á Smáþjóðaleikunum 2015 eru 232 talsins, þar af eru 168 keppendur, en hann er hvað líklegastur til afreka í sundinu eins og hann hefur raunar verið þekktir fyrir á leikunum undanfarin ár, en þeir eru nú haldnir í 16. sinn.
Smáþjóðaleikarnir eru stærsta verkefni sem Íþrótta- og ólympíusamband Íslands hefur ráðist í til þessa.
Útsendingarnar á hringbraut.is frá sundkeppni leikanna standa yfir frá klukkan 10.00 til 17.30 en leikunum lýkur 6. júní.
Fylgstu með beinni útsendingu með því að smella hér: