Blái liturinn sem alla jafna einkennir miðla Hringbrautar á bak og burt í dag og bleiki liturinn er kominn í staðinn í tilefni af átakinu sem kennt er við Bleiku slaufuna.
Bleika slaufan er tákn Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini hjá konum, en hún er seld árlega um þetta leyti. Átakinu verður hrint formlega af stað í dag - og eru landsmenn hvattir til að kaupa slaufuna svo vel safnist í sjóði félagsins, en þar hefur um langt árabil barist gegn þeim bágesti sem krabbamein er í samfélaginu.
Starfsfólk Hringbrautar er stolt að nýja litnum og vill með honum hvetja aðra landsmenn til að láta gott af sér leiða í baráttunni gegn krabbameini í konum.