Sjónvarpsstöðin Hringbraut og tímaritið MAN eru að hefja samstarf sem skila mun áhorfendum einstaklega fjölbreyttum og fræðandi þáttum um lífsstíl kvenna, heilsu og útlit og allt annað sem lýtur að áhugamálum þeirra og lífsvenjum.
Þáttaröðin hefst í september og verða þættirnir, sem eru klukkutími að lengd, frumsýndir öll miðvikudagskvöld klukkan 20:00 og endursýndir klukkan 21:00 á föstudagskvöldum. Umsjárkonur eru þær Björk Eiðsdóttir, ritstjóri MAN, sem er áhorfendum Hringbrautar að góðu kunn, enda sá hún um þáttaröðina Kvennaráð í árdaga stöðvarinnar, og Auður Húnfjörð, framkvæmdastjóri MAN, en þær stöllur hafa gefið út tímarit sitt um fjögurra ára skeið og fest það í sessi sem eitt vinsælasta og virtasta kvennablað landsmanna.
\"Það er mikill fengur í þeim Björk og Auði,\" segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, dagskrárstjóri Hringbrautar, \"en við teljum einsýnt að við náum til breiðari áhorfendahóps með sýningu þáttanna á komandi vetri. Svo vantar einfaldlega þátt af þessu tagi þar sem fjallað er fagmannlega um veruleika kvenna með fulltingi ábyrgra sérfræðinga sem geta miðlað fróðleik sínum með trúverðugum hætti.\"
Hann bendir á að Hringbraut hafi á síðustu misserum tekið upp samstarf við aðra fjölmiðla hér á landi, svo sem vefmiðlana Miðjuna og Kjarnann, en sá síðarnefndi hélt úti vönduðum fréttaskýringaþætti á síðasta vetri í umsjá Þórðar Snæs Júlíussonar og Þórunnar Elísabetar Bogadóttur - og mun hann hefja göngu sína á ný í haust.
\"Þetta er óskaplega spennandi og við erum fullar tilhlökkunar,\" segir Björk Eiðsdóttir, ritstjóri MAN um komandi verkefni í sjónvarpi, en hún metur það svo að öll sú þekking sem þær Auður hafi aflað sér á tímaritsárunum muni skila sér vel í sjónvarpsþáttunum. \"Miðað við þær frábæru viðtökur sem blaðið okkur hefur fengið á síðustu árum teljum við okkur vita hvað konur vilja láta bera fyrir sig á borð - og það verður í raun einstakt tækifæri að nýta þessu reynslu, svo og margt úr blaðinu sjálfu, í nýjum og spennandi miðli,\" segir Björk.
MAN-þættirnir byrja 6. september.