Hringbraut næst nú á 99,4% heimila

Sjónvarpsstöðin Hringbraut næst nú um allt land, eða sem nemur 99,4% heimila á Íslandi, eftir að útsendingar hennar komust inn á UHF-rásina, en hún nær til þeirra landsmanna sem eru ekki tengdir ljósleiðarakerfinu, ljósneti eða ADSL-tengingu. Hringbraut verður hér eftir staðsett á rás 9 á UHF-inu.

Þessi breyting merkir meðal annars að sumarbústaðaeigendur um allt land geta tengst Hringbraut, svo og allir aðrir sem ná sjónvarpsútsendingum með gamla laginu, gegnum greiðu eða loftneti á húsþökum. 

\"Þetta eru einstaklega gleðileg tíðindi fyrir okkur,\" segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, dagskrárstjóri Hringbrautar \"og mun auka útbreiðslu okkar til muna,\" bætir hann við og minnir á að varla hafi liðið sá dagur á undanliðnum misserum að unnendur sjónvarpsstöðvarinnar hafi ekki hringt inn til að athuga hvort hægt væri að ná útsendingum hennar á UHF-rásinni. \"Og nú getum við auðvitað fagnað þriggja ára afmælinu okkar 18. febrúar næstkomandi með enn meiri ánægju en ella,\" segir Sigmundur Ernir sem stofnaði Hringbraut ásamt Guðmundi Erni Jóhannssyni fyrir þremur árum.   

Hann telur að nú muni íbúar á elliheimilum og sjúkrahúsum fagna mjög, en þeir hafa kvartað sáran yfir því að geta ekki náð útsendingum Hringbrautar á undanliðnum árum - og þá ekki síður íbúar minni sveitarfélaga sem eru ekki tengdir ljósleiðarakerfinu, svo sem allt fólkið í Kjósinni: \"Við erum komnir til að vera í þróttmikilli íslenskri dagskrárgerð - og fjöldi nýrra þátta bíður áhorfenda okkar sem eru framleiddir af metnaði og ástríðu fyrir íslenskum þjóðmálum,  menningu, sögu, náttúru og tungu,\" segir dagskrárstjórinn.