Ekki laust við að manni hlýni um rætur hjartans þegar minnst er á almennilega galin þorrablót sem hafa verið haldin samfellt í heilu og hálfu mannsævina. Einmitt þeirri tilfinningu laust niður í huga þess sem hér fer fingrum um lyklaborðið þegar skimað var yfir baksíðu Moggans í dag þar sem fjallað var um 50. kommablótið í Neskaupsstað, en Hjörleifur kommi Guttormsson mun hafa byrjað á blótinu fyrir innvígða Allaballa á sjöunda áratug síðustu aldar, en nú vilja allir vera partur þess, jafnt argasta íhald sem atvinnurekendur í bland við bústna bændur af framsóknarættum í langfeðgatal. Og allir hjálpast að, búa til næringu holds og hugar - og koma svo saman daginn eftir og borða afgangana ásamt því að fá sér einn og annan viðgerðarbjór eftir atvikum. Þetta er lofsamlegt.
Hringbraut - lof dagsins
Fleiri fréttir
Nýjast