Eygló Harðardóttir, húsnæðis- og félagsmálaráðherra á lof dagsins skilið, en hún hefur sett ný viðmið í upplýsingu og gagnsæi um sína pólitísku breytni og gjörðir og eignir.
Það ber að taka ofan fyrir því þegar stjórnmálamenn ganga á undan með góðu fordæmi og segja sögu sína umbúðalaust, bera sig í raun fyrir almenningi í þeirri vissu og trú að fólkið í landinu eigi að vita hvaða mann sérhver pólitíkus hefur að geyma.
Eygló hefur slegið leyndarhyggjuna utan undir.
Svona eiga stjórnmálamenn að vera.
Hún er til fyrirmyndar að þessu leyti.