Útsending Ríkissjónvarpsins á Söngvakeppninni um nýliðna helgi er til vitnis um fagmennsku og metnað íslensks sjónvarpsfólks. Tiltölulega flókin vinnsla í gömlu góðu Laugardalshöllinni, sem hefur ekki alltaf verið sjónvarpsvæn í útliti sínu og innviðum, tókst með þvílíkum ágætum að jafna verður við það besta sem gert hefur verið í þessum efnum hér á landi - og þótt víðar væri leitað. Þökk sé ekki síst öllu tæknifólki sem vann að gerð þáttarins, en jafnt útsendingarstjórnin og tæknivinnsla hans var að mestu fumlaus og státaði aukinheldur af snjöllum lausnum í allri framsetningu. Það vill alltof oft gleymast hvað Íslendingar eiga orðið mikið og þrautreynt fagfólk á bak við sjónvarpsvélarnar, fólk sem augljóslega mun ráða við lokakeppni Eurovision að ári þegar Gréta Salóme verður búin að vinna keppnina í Svíþjóð.
Hringbraut - lof dagsins
Fleiri fréttir
Nýjast