Hringbraut - lof dagsins

Manni hlýnar óneitanlega um hjartaræturnar að fylgjast með landssöfnuninni fyrir Reykjadal í Mosfellsdal, en þar hefur verið rekin sumardvöl fyrir fötluð börn um langt árabil. Árlega hafa dvalist þar um 300 börn og ungmenni á aldrinum 8 til 35 ára, en sakir fjárskorts er biðtíminn eftir plássi um tvö ár. Tilvist sumardvalarinnar hefur oftsinnis verið í hættu sakir ónógra peninga til starfseminnar, en nú hefur almenningur tekið sig til og hafið söfnun svo fötluð börn geti áfram notið lífsins í mosfellskri sveit, en dvölin í Reykjadal er og hefur verið öllum ógleymanleg enda er mennskan ekki bara í fyrsta sæti á staðnum, heldur öllum sætum. Nú er hægt að styrkja Reykjadal með því að hringja eða senda sms í 901-5001 (1000 kr.) 901-5002 (2000 kr.) og 901-5003 (5000 kr.). Það er nefnilega svo að það sem gerir okkur að samfélagi er samhjálpin - og svo er annað sem ber að hafa hugfast í þessum efnum; samfélag er hvorki betra né merkilegra en sem nemur framkomu þess við þá sem eiga á brattan að sækja ...