Hringbraut - hugmynd dagsins

Hver er algengasta sjón á matsölustöðum nú til dags? Jú, fólk að horfa í gaupnir sér, eða öllu fremur á símaskjáinn. Það er nefnilega svo að þegar skimað er yfir heilu veitingahúsasalina á þessum síðustu og verstu tímum er fólk ekki að tala saman eða að borða; nei, það er að skoða síðustu skilaboðin í símanum sínum. Og þvílík vitleysa í raun og sann. Af hverju ekki að njóta augnabliksins, tala saman, borða saman, skála og gleðjast. Til þess eru jú restaurantar. Sænskurinn er búinn að finna ráð við þessu. Veitingastaður einn í Karlstad gefur fólki afslátt af matnum ef það lætur gemsann sinn í skjóðu sem toguð er upp í loft og slakað niður þegar menn þurfa að nálgast símann að afloknum dýrðlegum mat og drukk. Og niðurstaðan; allir glaðir, talandi saman - að njóta núsins. Þetta er hugmynd dagsins ...