Fjölmiðlar voru til umræðu á Alþingi í dag og fengu misjafna einkunn.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingkona VG, kvað sér hljóðs og gerði ójafna skiptingu viðmælenda og dapran þátt kvenna í fjölmiðlum að umræðuefni.
Þingkonan sagði að eini fjölmiðillinn á landinu sem stæði sig afar vel í að gæta jafnréttis kynjanna væri Hringbraut sem væri með sérstakt bókhald til að tryggja jafna þátttöku kynjanna í umfjöllun. Vísaði þingkonan til þess að henni skildist að þeir sem hefðu komið á sjónvarpsstöðina Hringbraut hefðu sagt að uppi á vegg væri listi þar sem farið væri daglega yfir stöðuna.
Nefndi svo Bjarkey tölur í þingpontu um skiptingu kynja eftir viðmælendum, allt frá upphafsskrefum Hringbrautar sem sýndu að hlutfallið hjá sjónvarpsstöðinni væri nánast hnífjafnt milli kvenna og karla.