Hringbraut fylgist með hjartaaðgerð

Sjónvarpsþátturinn Ativnnulífið, sem er á dagskrá Hringbrautar í kvöld, er helgaður starfsemi Landspítalans við Hringbraut, en þar verður rætt forstjórann, Pál Matthíasson um daglega starfsemi á þessum stærsta vinnustað landsins.

Þáttastjórnandinn Sigurður K. Kolbeinsson og myndatökumaður Friðþjófur Helgason fengu að fara um alla kima spítalans við upptöku á þættinum, meðal annars inn á skurðstofur hans og fengu að fylgjast þar með uppskurði vegna kransæðastíflu annars vegar og eitlasýnatöku hins vegar.

Atriði í þessum þætti eru vart fyrir viðkvæma, en meðal annars sést ofan í brjóthol eins sjúklings í þættinum þar sem hjarta hans slær af fullum þunga.

Að viku liðinni verður síðari þátturinn um Landspítalann sýndur á Hringbraut, en þar verður fjallað um framtíð spítalans og áform um uppbyggingu hans.

Atvinnulífið er frumsýnt klukkan 21:00 í kvöld og endursýnt strax klukkan 23:00.

Hægt er að horfa á klippu úr þætti kvöldsins hér: