Hringbraut flytur á Eiðistorg í dag og á morgun. Því verður endurflutt dagskrá að hluta til í kvöld, Þjóðbrautarþátturinn frá síðasta sunnudegi verður endurfluttur eftir klukkan 21:00.
Með flutningnum verður betur búið að Hringbraut. Myndverið verður mun stærra en það sem nú er og öll aðstaða verður önnur og betri. Hringbraut verður til húsa í því rými þar sem Íslandsbanki var áður.
Fyrsta beina útsendingin frá Eiðistorgi er áætluð á sunnudagsmorguninn milli klukkan 10:00 og 12:00.