Hringbraut: fjórða stærsta stöðin

Sjónvarpsstöðin Hringbraut er orðin fjórða stærsta á landinu samkvæmt áhorfsmælingum Gallup, en stöðin hefur einungis verið starfrækt í ríflega sjö mánuði.

Hringbraut hóf starfsemi 18. febrúar á þessu ári og sendi fyrst um sinn út nýtt efni í klukkutíma á kvöldin, en hóf fljótlega að senda út allan sólarhringinn, þar á meðal nýtt frumsýnt efni í tvo tíma frá klukkan 20:00 til 22:00 á hverju kvöldi frá mánudegi til föstudags: \"Við erum afskaplega ánægð með þessar viðtökur,\" segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, sjónvarpsstjóri Hringbrautar og bætir við: \"Við erum með 20 til 30 innlenda þætti í hverri viku, meira og minna talmálsefni - og það virðist hafa verið þörf á því að bjóða upp á upplýsandi, hófstillta og trúverðuga umræðu um íslensk samfélagsmál í sjónvarpi. Það finnst mér mjög gleðilegt á tímum upphrópana og sleggjudóma hér á landi, sem ekkert lát virðist vera á, en einkunnarorð okkar eru mannvirðing, umburðarlyndi, víðsýni og jafnrétti,\" segir sjónvarpsstjórinn og bendir á að nú sé stöðin þegar byrjuð að senda út frumsýnt efni um helgar og áfram verði hægt og bítandi aukið við þjónustuna, sem er landsmönnum að kostnaðarlausu.

Nýjustu mælingar Gallup sýna að sjónvarpsstöðvar RÚV, 365 miðla, Skjáseins og Hringbrautar eru fjórar stærstu sjónvarpsstöðvar á Íslandi um þessar mundir: \"Markhópurinn okkar á Hringbraut er 30 ára og eldri og það ánægjulegt að sjá að 23 til 27% þess hóps eru að horfa á sjónvarpsstöðina okkar. Þetta hlutfall er ennþá hærra hjá 50 ára og eldri, því sá hópur mælist með tæplega 35% uppsafnað áhorf á Hringbraut yfir vikuna,\" segir Sigmundur Ernir og er sérstaklega ánægður með að sjá að kynjahlutfall áhorfenda stöðvarinnar er hnífjafnt: \"Við höldum kynjabókhald yfir alla okkar gesti sem nálgast nú 1.000 og þar er þess gætt að ekki halli á annað kynið - og það átak sýnist mér skila sér í áhorfinu.\"