Hringbraut: fanney björk í einkaviðtali

Fréttaskýringarþátturinn Kvikan í umsjá Björns Þorlákssonar hefur göngu sína á Hringbraut í kvöld, en þar ræðir Björn við Fanneyju Björk Ásbjörnsdóttur, leikskólakennara úr Eyjum sem hefur barist við ríkið svo árum skiptir.

Fanney Björk smitaðist af lifrarbólgu C við blóðgjöf á Sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum eftir barnsburð árið 1983. Hún hefur árum saman reynt að fá bót sinna meina, en með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í síðustu viku hefur verið kveðinn upp dauðadómur yfir henni, að því er hún sjálf segir.

Einkaviðtal Björns við Fanneyju Björk í Kvikunni er bæði opinskátt, gagnrýnið og átakanlegt.

Kvikan hefst klukkan 21:30 í kvöld.

 

K 

Kvikan er frumsýnd í kvöld klukkan 21:30 og endursýnd strax klukkan 23:30.

Þátturinn verður hálfsmánaðarlega á dagskrá á fimmtudagskvöldum og tekur fyrir stór og áhugaverð fréttamál og brýtur þau til mergjar.