Hringbraut eykur útbreiðslu sína

Sjónvarpsstöðin Hringbraut sem brátt fagnar fjögurra mánaða afmæli sínu hefur aukið útbreiðslu sína til muna frá því sem verið hefur, en allir landsmenn eiga nú þess kost að sjá efni hennar í sjónvarpi.


Dagskrá stöðvarinnar hefur til þess eingöngu verið send út í háskerpu, en það hefur takmarkað útbreiðslumöguleika hennar sakir þess að allir landsmenn hafa ekki aðgang að þeirri tækni. Í þessu ljósi hefur verið ákveðið að senda dagskrána einnig út í svokölluðum SD-gæðum sem krefjast ekki jafn mikillar tækni við móttöku efnisins.


Sjónvarpsáhorfendur sem eru tengdir Vodafone geta nú bæði náð útsendingum Hringbrautar á rás 25 í SD-gæðum og einnig á rás 524 í háskerpu. 


Þeir sjónvarpsnotendur sem þiggja þjónustu Símans ná Hringbraut eftir sem áður á rás 7. 


"Við höfum fundið fyrir miklum og vaxandi áhuga alls almennings um allt land á efni stöðvarinnar okkar," segir Sigmundur Ernir Rúnarsson dagskrárstjóri Hringbrautar "og við viljum endurgjalda þennan áhuga með því að gera öllum kleift að horfa á efni okkar. Það hefur nú gengið eftir - og við hlökkum til að þjóna enn fleiri áhorfendum í framtíðinni," segir hann.


Sú breyting hefur einnig orðið á útsendingum Hringbrautar að nú sendir hún út efni sitt allan sólarhringinn, en frumsýnt efni er sent út milli klukkan 20:00 og 22:00 á kvöldin.


Um 500 gestir hafa mætt í þætti Hringbrautar til þessa og er kynjahlutfallið þar jafnt, en það er birt mánaðarlega á vef Hringbrautar.