Hringbraut er 4 ára í dag

Sjónvarpsstöðin Hringbraut fagnar fjögurra ára afmæli í dag, en hún hóf útsendingar að kveldi 18. febrúar 2015 með þættinum Mannamáli þar sem rætt var við Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands.

Gestgjafi þáttarins, þá sem endranær var Sigmundur Ernir Rúnarsson sem hafði mánuðina á undan undirbúið stofnun stöðvarinnar ásamt Guðmundi Erni Jóhannssyni, gömlum samstarfsfélaga sínum á Stöð 2 frá því á árum áður. Sigmundur Ernir og Guðmundur Örn, sem enn stýra stöðinni og samnefndum vef hennar, voru í fyrstu einu föstu starfsmenn Hringbrautar, en nú fjórum árum síðar vinna að staðaldri fjórtán manns í fullri vinnu á stöðinni ásamt nokkrum fjölda lausafólks við þáttagerð og tæknivinnslu. Og í bígerð er enn frekara umfang starfseminnar sem kynnt verður síðar á árinu.

\"Að baki er mikið ævintýri,\" segir Sigmundur Ernir sem annast dagskrárstjórn og alla ritstjórn Hringbrautar ásamt Lindu Blöndal sem gekk til liðs við stöðina fyrir þremur árum. \"Við höfum auðvitað ekki tölu á öllum þeim þáttum og þáttaröðum sem eru að baki - og þótt leikurinn á markaðnum sé jafn ójafn og hugsast getur er engan bilbug á okkur að finna,\" segir hann jafnframt og minnir á í því samhengi að viðtökur áhorfenda um allt land og ekki síður á meðal tugþúsunda Íslendinga erlendis séu Hringbrautarfólkinu dagleg hvatning.

\"Það er markaður fyrir upplýsandi og fræðandi þætti þar sem áhugaverðir gestir okkar fá rými til að tjá sig - og nú stefnum við að því að koma efninu okkar á podcast svo enn fleiri njóti þess,\" segir Sigmundur Ernir og kveðst stoltur af því að hafa öðru fremur valið reynslumikið fólk til dagskrárgerðar; fréttamenn sem njóti virðingar í starfi - og eigi helst að baki áratugi í faginu. \"Einkunnarorð okkar eru Við miðlum af reynslu og við viljum eiga fyrir því innistæðu,\" segir hann að lokum.