Litla iðnþingið er heiti tveggja þátta raðar sem frumsýnd verður á Hringbraut næsta mánudagskvöld, en þar mun Sigmundur Ernir fá til sín marga helstu framámenn í íslenskum iðnaði til að varpa ljósi á stöðu þessarar mikilvægu atvinnugreinar á Íslandi.
Það eru margar spurningar sem brenna á fólkinu sem tilheyrir þessum geira þar sem 20% íslenska vinnuaflsins hefur komið sér fyrir; rekstrarumhverfi lítilla, meðalstórra og stórra fyrirtækja verður í brennidepli, svo og alþjóðavæðingin, tæknibylturnar, breytt ásýnd fyrirtækja og vinnustaðamenning, en einnig verður fjallað um menntun og mannauð og þá miklu hugarfarsbreytingu sem varðar grænar lausnir í íslenskum iðnaði.
Gestir þáttanna, sem sýndir verða næsta og þarnæsta mánudag eru Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri þeirra, Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri Jáverk, Kristinn Aspelund, markaðs- og sölustjóri Marorku, Guðbjörg Óskarsdóttir sem stýrir álversklasanum, Jón B. Stefánsson, skólastjóri Tækniskólans, Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, Stefán Sigurðsson, forstjóri Vodafone, Aðalheiður Héðinsdóttir, forstjóri Kaffitárs og Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis.