Hringbraut: dögurður fyrir tvo í boði

Sjónvarpskonan Sirrý endaði þátt sinn Lífsins list í gærkvöld á þeim orðum að hún biði áhorfendum upp á dögurð fyrir tvo með freyðivíni á veitingastaðnum Aalto Bistro í Norræna húsinu.

Þetta er auðvitað vel boðið á hásumri og rómantískt í meira lagi að byrja til dæmis laugardagsmorgun á því að bjóða elskunni sinni á þennan notalega veitingastað í hjarta borgarinnar og njóta dýralífsins allt í kring á meðan gætt er sér á dásamlegum mat úr eldhúsi Sveins meistara Kjartanssonar.

Allt sem þarf að gera er að fara inn á fésbókarsíðu Hringbrautar og \"læka\" viðburðinn.

Í þætti gærkvöldsins sprangaði Sirrý annars á milli allra þeirra fjölbreyttu veitingastaða sem er að finna allt í kringum Reykjavíkurflugvöll, en af nógu er þar að taka; jafnvel er hægt að nota tækifærið og skipta um dekk á einum þeirra.

Þáttinn má sjá hér: