Sjónvarpsstöðin Hringbraut, sem mælist nú um stundir fjórða vinsælasta sjónvarpsstöð landsmanna - og sú stærsta af þeim minnstu - fagnar níu mánaða afmæli í dag \"og ber sig vel\" eins og sjónvarpsstjórinn Sigmundur Ernir Rúnarsson kemst að orði.
Að vanda er kynjabókhald stöðvarinnar birt á afmælisdegi, en af vel rösklega eitt þúsund viðmælendum sem birst hafa í þáttum stöðvarinnar til þessa eru 579 konur og 595 karlar \"sem merkir að þáttastjórnendur verða að hafa uppi á fleiri konum til að tala við af þeirri einföldu ástæðu,\" segir Sigmundur Ernir \"að við viljum sýna samfélagið eins og það er, en þar eru konur einmitt jafn margar og karlar, hafi það farið framhjá einhverjum.\"
Sífellt eru nýir þættir að bætast í dagskrá Hringbrautar og aðrir að fara í frí um stundarsakir. Í því sambandi má nefna að hlé verður gert á upptöku nýrra þátta af Fólki með Sirrý núna í desember og janúar og sömuleiðis á þáttunum Þjóðbraut sem Páll Magnússon hefur stýrt. Þá hvíla Ólafarnir sig í jólamánuðinum, en mæta svo aftur og skrafhreyfnari en nokkru sinni í byrjun nýs árs og sama gildir um Okkar fólk sem byrjar á nýjaleik um miðjan desember. Þá fer bíladelluþátturinn Kíkt í skúrinn í frí í byrjun aðventu og kemur aftur á dagskrá á útmánuðum.
Af nýjum þáttum sem fara brátt á dagskrá eru Best að borða sem Vala Matt stýrir með fleira góðu fólki en þar kennir hún fólki að elda hollt og gott fyrir sem minnstan pening, en fjöldi þekktra Íslendinga keppir þar um að elda sem bestan mat fyrir sem minnstan pening. Þá er ónefndur nýr leikhúsþáttur sem hefur göngu sína í desember sem unninn er í samvinnu við leikhus.is og þá má ekki gleyma óuppteknum úrslitaþætti spurningaþáttarins Viti menn sem verður í lengra lagi og sendur út um miðjan desember með pompi og prakt - og má teljast næsta víst að þar mæti Karl Th. Birgisson með nýja þverslaufu um hálsinn..
Loks eru að hefjast útsendingar á heimildarþáttum úr safni National Geographic sem eru allt í senn mjög metnaðarfullir, vandaðir og upplýsandi, en heimildarþættir hafa notið vinsælda á dagskrá Hringbrautar þá níu mánuði sem stöðin hefur verið í loftinu.
Ónefndir eru enn fleiri nýir þættir sem hefja göngu sína á nýju ári sem verða kynntir sérstaklega þegar nær dregur því herrans ári.
\"Mest um vert er að finna fyrir þeim hlýhug sem fólk ber til litlu stöðvarinnar okkar. Móttökurnar hafa verið vel framar vonum og mér sýnist breiður hópur fólks kunna að meta efni okkar sem við reynum að framreiða af yfirvegun og með mannvirðingu að leiðarljósi,\" segir sjónvarpsstjórinn á afmælisdegi.