Sjónvarpsstöðin Hringbraut fagnaði átta mánaða afmæli í gær, en hún hóf útsendingar 18. febrúar á þessu ári og hefur fengið góðar viðtökur landsmanna, enda þegar orðin fjórða vinsælasta sjónvarpsstöð landsmanna samkvæmt mælingum Gallup.
Eittþúsundasti gesturinn heimsótti Hringbraut í nýliðinni viku og reyndist þar vera kominn Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, en hann var gestur þeirra Ólafs Arnarsonar og Ólafs Ísleifssonar í þættinum Ólafarnir.
Viðmælendur í öllum þáttum Hringbrautar frá upphafi eru nú orðnir 1022 - og skiptast þannig eftir kyni: 502 konur hafa birst í þáttum stöðvarinnar, en 520 karlar.
\"Kynjabókhald okkar er eilíf áminning um að standa okkur almennilega í þessum efnum,\" segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, sjónvarpsstjóri Hringbrautar og minnir á að jafnrétti er eitt gilda Hringbrautar, auk umburðarlyndis, víðsýni og mannvirðingar.
\"Ég held að stöðin okkar sýni betri, réttari og áhugaverðari mynd af samfélaginu með því að gera kynjunum jafn hátt undir höfði,\" bætir hann við.