Sjónvarpsstöðin Hringbraut fagnar hálfs árs afmæli í dag og birtir af því tilefni tölur úr kynjabókhaldi sínu, svo sem gert hefur verið mánaðarlega frá því stöðin hóf útsendingar þann 18. febrúar, fyrr á þessu ári.
Alls hafa nú 716 viðmælendur komið fram í þáttum Hringbrautar frá byrjun - og hallar heldur á konur þennan mánuðinn; 351 kona hefur mætt sem viðmælandi í þætti Hringbrautar á móti 365 körlum.
\"Þessar tölur herða okkur og brýna,\" segir Sigmundur Ernir Rúnarsson dagskrárstjóri Hringbrautar sem segir það ófrávíkjanlega reglu að hafa jafn marga viðmælendur af hvoru kyni á stöðinni. \"Svona bókhald veitir gott og nauðsynlegt aðhald,\" segir hann og bendir á að í fyrri uppgjörum hafi konur oftar haft vinninginn en karlar, en nú þurfi að slá í klárinn, eða öllu heldur merina.
Haustdagskrá Hringbrautar tekur gildi í fyrstu viku september en þá byrja nýjar þáttaraðir af vinsælustu þáttum stöðvarinnar á borð við Mannamál, Fólk með Sirrý, Helginni, Ritstjórunum, Lífsstíl, Atvinnulífinu og 433, en seinna í haust byrjar Kvennaráð og nýr þjóðmálaþáttur. Af öðru nýmeti má nefna spurningaþáttinn Viti menn í umsjá Karls Th. Birgissonar og þáttinn Okkar fólk í stjórn Helga Péturssonar sem skoðar aðbúnað og lífsskjör fólks sem komið er af léttanda skeið hringinn í kringum landið, en sjálfur er Helgi að verða 67 ára á næsta ári. Þá er ónefndur þátturinn Heilsutíminn sem verður unninn í samvinnu við Fréttatímann, ferðaþátturinn Góða ferð, upplýsingaþátturinn Ég bara spyr, nýr bókaþáttur og Dömuhornið sem tyllir sér við hlið Herrahornsins sem slegið hefur í gegn á dagskrá Hringbrautar í sumar. Eins halda þættir á boð við Afsal, Kíkt í skúrinn og Við árbakkann áfram í haust, svo og jurtaþáttur Auðar Rafnsdóttur sem breytist í Kryddjurtir - og er þá enn ónefndur nýrstárlegur þáttur Lukku Pálsdóttur um mataræði.
\"Við erum stolt af móttökum stöðvarinnar. Við erum lítil stöð en lifandi,\" segir Sigmundur Ernir \"og viljum umfram allt vanda okkur.\"