Samtals hafa 529 gestir birst í þáttum Hringbrautar á fyrstu fjórum mánuðunum sem sjónvarpsstöðin hefur verið í loftinu og hafa konur þar nauman vinninginn; 269 konur hafa verið viðmælendur í þáttum Hringbrautar á móts við 260 karla.
\"Við höfum heitið því að birta kynjabókhaldið okkar mánaðarlega og við það verður auðvitað staðið,\" segir Sigmundur Ernir Rúnarsson dagskrárstjóri Hringbrautar en leiðarstef sjónvarpsstöðvarinnar eru mannvirðing, umburðarlyndi, víðsýni og jafnrétti. \"Síðastnefnda gildið væri bara orðið tómt ef við sýndum það ekki í verki að við viljum hampa konum til jafns við karla í þáttastjórnun jafnt sem viðmælendum. Og hvorutveggja hefur gengið eftir - og það nokkuð liðlega,\" segir dagskrárstjórinn ennfremur, \"þótt stöku sinnum hafi ég þurft að hnippa í umsjónarmenn ef þeir hafa verið full til karllægir í umræðunni,\" bætir hann við.
Fyrstu áhorfstölur stöðvarinnar eru henni hagfelldar og sýna verulegan áhuga fólks, 30 ára og eldri, á efni stöðvarinnar, en athygli vekur að kynjahlutfall áhorfenda er nákvæmlega jafnt. \"Við erum mjög þakklát hér á Hringbrautinni fyrir frábærar viðtökur og þann hlýhug sem einkennir umræðuna um litlu stöðina okkar,\" segir Sigmundur Ernir.
Sumardagskrá Hringbrautar hefst um næstu mánaðamót en þegar eru byrjaðir nokkrir þættir sem einkenna hana, svo sem Grillspaðinn sem frumsýndur er á miðvikudagskvöldum og bíladelluþátturinn Kíkt í skúrinn á mánudögum. Veiðiþættir Gunnars Bender, Við árbakkann hefjast á næstu dögum og sömuleiðis léttir og skemmtilegir golfþættir í umsjá Eyjólfs Kristjánssonar sem eru á dagskrá síðar í sumar, en um líkt leyti byrja lestrarþættirnir Bókin sem breytti mér. Þá hefst nýr þáttur að nafni Matjurtir í annarri viku og sömuleiðis þátturinn Fólk og frumkvæði sem fjallar um árangur íslenskra fyrirtækja í útflutningi og eins má nefna Afsal sem er nýstárlegur þáttur um fasteignaviðskipti. Loks ber að nefna að aukin áhersla verður lögð á sýningu heimildaþátta í sumar, en þar á meðal eru íslenskir þættir um vesturfaranna.
Hringbraut sendir nú út efni sitt allan sólarhringinn, jafnt í SD- og HD-gæðum og næst orðið um allt land. Stöðin frumsýnir að jafnaði hartnær 20 þætti á viku, milli klukkan 20:00 og 22:00 á kvöldin en síðan taka endursýningar við.