Hringbraut: 189 konur, 183 karlar

Sjónvarpsstöðin Hringbraut fagnar þriggja mánaða afmæli í dag og birtir af því tilefni nýjustu tölur úr kynjabókhaldi stöðvarinnar. Það sem af er hafa 372 viðmælendur birst í þáttum stöðvarinnar, þar af 189 konur og 183 karlar.


Karlar höfðu vinninginn þegar tölur stöðvarinnar yfir viðmælendur voru birtar fyrir réttum mánuði en nú hefur dæmið snúist við, konum í vil. "Það er ánægjulegt að sjá hvað gott jafnvægi ríkir á milli kynja í þáttum okkar, "segir Sigmundur Ernir Rúnarsson dagskrárstjóri Hringbrautar og minnir á gildi stöðvarinnar; mannvirðingu, umburðarlyndi og jafnrétti. "Við tökum öll þessi gildi bókstaflega - og það vita þáttastjórnendur okkar sem leggja sig í líma við að halda þau í heiðri," segir dagskrárstjórinn og segir það gamla mýtu að mun erfiðara sé að fá konur í sjónvarpsþætti en karla. "Á þeim rösku 30 árum sem ég hef unnið við fjölmiðla hefur þetta blessunarlega breyst til mikilla muna; konur hafa sótt fram af fullum þunga og eru að verða jafn gildandi í samfélagsumræðunni og karlar, sem er vel, en minnir okkur fjölmiðlafólk jafnframt á að það er ekki lengur nein afsökun að hafa tóma karla í þáttum, fréttum og viðtölum."


Sjónvarpsstöðin Hringbraut frumsýnir nú 15 sjónvarpsþætti í hverri viku, milli klukkan 20.00 og 22.00 á kvöldin, en leitast hefur verið við að hafa jafn marga þáttastjórnendur kvenkyns og karlkyns. Tveir nýir þættir eru að hefja göngu sína þessa dagana, en það er bíladeilluþátturinn Kíkt í skúrinn í umsjón Jóhannesar Bachmann sem byrjar í kvöld klukkan 20.30 og Tara og trixin með útlitsráðgjafanum Töru Brekkan sem hefst um miðja næstu viku.